Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimir Hallgríms: Þetta var leiðinlegur leikur
Mynd: EPA
Írska landsliðið, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, átti slæman dag í gær þar sem liðið gerði markalaust jafntefli gegn Lúxemborg í æfingaleik.

Lúxemborg er 31 sæti neðar en Írland á heimslistanum og var Heimir að vonum vonsvikinn með frammistöðuna eftir 1-1 jafntefli gegn Senegal í fyrri leiknum í þessum glugga. Þá var þetta síðasti leikurinn fyrir fyrsta leik í undankeppni HM sem fer af stað hjá liðinu í september.

„Við erum ekki sáttir með þessa frammistöðu. Það er gott að halda hreinu, þetta var í fyrsta sinn síðan ég kom en okkur fannst við vera kærulausir í fyrri hálfleikur og leikurinn var leiðinlegur," sagði Heimir.

„Það vantaði allt það góða sem við gerðum gegn Senegal. Áræðnin var allt önnur gegn Senegal."
Athugasemdir
banner