Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   fös 29. mars 2019 15:00
Elvar Geir Magnússon
Getur staðfest að þetta sé besti leikvangur heims
Tottenham leikvangurinn.
Tottenham leikvangurinn.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino talaði um nýja leikvang Tottenham á fréttamannafundi í dag. Völlurinn er tilbúinn og liðið farið að æfa á honum.

Fyrsti leikur Tottenham á vellinum verður þann 3. apríl gegn Crystal Palace.

„Leikvangurinn er hreinlega magnaður. Þetta er besti leikvangur heims og við getum staðfest það núna," sagði Pochettino.

„Allir hlutar hans eru það besta sem ég hef séð á minni lífsleið. Það er ekki hægt að bera hann saman við nokkurn annan leikvang."

„Leikvangurinn verður mikil lyftistöng fyrir stuðningsmenn og leikmenn líka."

Næsti leikur Tottenham er á Anfield á sunnudaginn.

Embed from Getty Images
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner