„Ég held að það séu allir með óbragð í munninum eftir þennan leik úti," sagði Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, við Fótbolta.net í dag.
„Finnland skapaði ekkert en áttu þessa frábæru aukaspyrnu og það var nóg. Ég held að menn hafi farið heim frá Finnlandi súrir í munninum og komi þeim mun grimmari í þennan leik á móti Úkraínu."
„Finnland skapaði ekkert en áttu þessa frábæru aukaspyrnu og það var nóg. Ég held að menn hafi farið heim frá Finnlandi súrir í munninum og komi þeim mun grimmari í þennan leik á móti Úkraínu."
Einar lét vel í sér heyra í lýsingunni á RÚV í 1-0 tapinu gegn Finnum. Tékkneski dómarinn Pavel Kralovec var ekki í uppáhaldi hjá Einari.
„Ég hef aldrei verið sérstaklega vinveittur dómurum. Augljóslega rangir dómar eiga það til að kveikja í manni. Það var of mikið af furðulegum dómum í þessum leik til að maður gæti verið hlutlausi gaurinn."
Einar reiknar með því að Ísland spili 4-4-2 gegn Úkraínu annað kvöld eftir að hafa leikið 4-5-1 í síðustu tveimur leikjum. „Mig grunar að hann fari aftur í 4-4-2. Gylfi fer þá aftur inn á miðjuna til að ná meira frumkvæði þar."
„Við höfum ekki tapað heima í fjögur ár. Með fullan Laugardalsvöll taka þessir strákar eitt og eitt skref upp á við í viðbót ofan á þennan andlega styrk sem þeir hafa," sagði Einar en hann spáir íslenskum sigri.
„Þetta verður rosalega mikilvægur og skemmtilegur 1-0 sigur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir























