Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   mán 05. júlí 2021 18:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið KA og KR: Arnþór og Elfar byrja - Elmar á bekknum
Elfar Árni Aðalsteinsson
Elfar Árni Aðalsteinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA tekur á móti KR á Dalvíkurvelli klukkan 19:15. Liðin mættust fyrr á þessu ári og þá vann KA 3-1 sigur.

Leikurinn í kvöld er liður í 11. umferð Pepsi Max-deilar karla. KA gerði 1-1 jafntefli við FH í síðustu umferð en KR tapaði 1-2 gegn Stjörnunni.

KA gerir tvær breytingar frá leiknum gegn FH. Dusan Brkovic er í leikbanni og Haukur Heiðar Hauksson kemur inn. Þá kemur Elfar Árni Aðalsteinsson inn fyrir Steinþór Frey Þorsteinsson. Þetta er kveðjuleikur Brynjars Inga Bjarnasonar en hann heldur til Lecce í atvinnumennsku eftir leikinn.

KR gerir tvær breytingar frá leiknum gegn Stjörnunni. Ægir Jarl Jónasson og Atli Sigurjónsson víkja og inn koma Arnþór Ingi Kristinsson og Stefán Árni Geirsson. Theodór Elmar Bjarnason lék síðast með KR árið 2004, hann byrjar bekknum í dag eftir að hafa snúið heim úr atvinnumennsku í síðustu viku.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.

Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Haukur Heiðar Hauksson
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Sebastiaan Brebels
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
16. Brynjar Ingi Bjarnason
26. Jonathan Hendrickx
27. Þorri Mar Þórisson
30. Sveinn Margeir Hauksson

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Arnþór Ingi Kristinsson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
9. Kjartan Henry Finnbogason
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
19. Kristinn Jónsson
21. Kristján Flóki Finnbogason
22. Óskar Örn Hauksson (f)
29. Stefán Árni Geirsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner