Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   fös 06. maí 2022 10:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sporting að virkja ákvæði Porro - City fær 8 milljónir
Mynd: EPA

Fjölmiðlar í Portúgal greina frá því að Sporting CP sé búið að virkja kaupákvæði í lánssamningi Pedro Porro.


Porro er 22 ára bakvörður frá Spáni sem Manchester City lánaði til Sporting fyrir tveimur árum síðan með kaupmöguleika.

Núna hefur Sporting ákveðið að virkja þann möguleika, sem hljóðar upp á 8,5 milljónir evra. Porro verður því leikmaður Sporting í sumar.

Man City er með endurkaupsákvæði og getur keypt Porro til baka fyrir 20 milljónir evra.

Annars verður 45 milljón evra söluákvæði í nýjum fimm ára samningi Porro við Sporting.

Porro spilaði sinn fyrsta A-landsleik fyrir Spán í fyrra eftir að hafa spilað 7 leiki fyrir U21 liðið.


Athugasemdir
banner
banner
banner