Kári Árnason, varnarmaður íslenska landsliðsins, var að vonum í skýjunum eftir að Ísland tryggði sér sæti á EM 2016 með jafntefli gegn Kasakstan á Laugardalsvelli í kvöld.
Þrátt fyrir að Ísland hafi ekki átt sinn besta leik er liðið búið að skrá sig á spjöld sögunnar og tekur þátt í sínu fyrsta stórmóti næsta sumar.
Þrátt fyrir að Ísland hafi ekki átt sinn besta leik er liðið búið að skrá sig á spjöld sögunnar og tekur þátt í sínu fyrsta stórmóti næsta sumar.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 0 Kasakstan
„Þetta er bara frábært, það er ekki hægt að lýsa þessu með orðum. Þetta er það stærsta sem íslenskt landslið hefur farið í gegnum. Við kláruðum þetta, það var mikilvægast. Þetta var kannski ekki besti leikurinn en við kláruðum þetta. Það var vel fagnað, það er ljóst," sagði Kári eftir leikinn.
„Það var fyrirséð að þetta yrði ekki besti fótboltaleikurinn, við höfum spilað marga betri. Við héldum boltanum ekki vel innan liðsins og komum okkur ekki í þessi færi sem við erum vanir að gera, þetta er fyrsti leikurinn í þessari undankeppni sem okkur tekst ekki að skora."
Kári komst á dögunum í Meistaradeildina með liði Malmö og fer nú með Íslandi á EM. Hann er á ansi góðum stað á ferlinum.
„Þetta landslið hefur náttúrulega hjálpað þar til, þetta er náttúrulega bara snilld. Þegar ég var kominn í League Two var ég búinn að gefa það upp á bátinn að ég myndi fara í Champions League og svo á EM," sagði Kári.
Athugasemdir






















