Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
Alli Jói: Er svekktur með sjálfan mig
Haraldur: Kemur auka orka þegar við missum mann af velli
Gunnar Heiðar: Eins og við þyrftum að fá mark í andlitið til þess að allir kveiki á sér
Siggi Höskulds: Svekkjandi að ná ekki að halda þetta lengur út eftir að skora
„Sýnir úr hverju menn eru gerðir þegar það er búið að berja á sér"
Gunnar Már: Sérð það á liðinu að sjálfstraustið er ekkert
Gústi Gylfa eftir fyrsta Breiðholtsslaginn: Ekki slegnir út af laginu
Mætti góðum vini sínum - „Klobbaði hann og þá fékk hann alveg að vita af því"
Jóhann Birnir: Það er akkúrat það sem við ætlum að vera
Árni Freyr: Tel mig og teymið vera nægilega gott til þess að snúa þessu við
Halli Hróðmars: Getum náð í úrslit líka þó að það dynji aðeins á okkur
„Ákváðum þetta í raun bara klukkan hálf ellefu í morgun"
Agla María: Frammistaðan hefur alveg verið betri
Nik Chamberlain: Enginn vafi á því að við myndum vinna þennan leik
Pétur Rögnvalds: Óhress með sjálfan mig
Hulda Ösp: Ég var bara á réttum stað og á réttum tíma
Rakel Grétars: Það gekk ekkert upp
Guðni um endatakmarkið: Rosalegt hungur að gera það í ár
Jói um gula spjaldið: Greinilega mikið að gera hjá dómaranefndinni
Óli Kri: Sólin kemur upp á morgun og það eru fleiri verkefni framundan
   lau 08. júlí 2023 20:32
Sverrir Örn Einarsson
Sami Kamel: Frábær tilfinning að snúa aftur á völlinn
Sami Kamel
Sami Kamel
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sami Kamel sneri aftur í lið Keflavíkur í dag í leik gegn Víkingum og átti afbragðsleik í 3-3 jafntefli þeirra á HS Orkuvellinum í Keflavík í dag. Sami sem verið hefur frá vegna meiðsla undanfarnar vikur var nokkuð léttur í fasi í viðtali við Fótbolta.net að leik loknum,

Lestu um leikinn: Keflavík 3 -  3 Víkingur R.

„Þetta er frábær tilfinning að snúa aftur á völlinn. Ég hef alltaf elskað að spila fótbolta og þá sérstaklega gegn góðum liðum þar sem ég get skorað á sjálfan mig. Þannig að þetta var góð tilfinning jafnvel þó að ég hafi verið kominn með krampa eftir um áttatíu mínútur sem ég er ekki vanur að gera.“ Sagði Sami Kamel sem átti skínandi leik í liði Keflavíkur í kvöld.

Fyrsta korter leiksins var gufuruglað svo ekki sé fastara að orði kveðið. Fjögur mörk litu dagsins ljós og leikurinn mjög opinn. Hvernig horfði þetta við Sami?

„Við höfðum kannski ekki frumkvæðið en við vorum klárlega tilbúnir í leikinn. Við sýndum mjög gott hugarfar að koma til baka eftir að hafa lent undir. En í upphafi leiks var eftitt að sjá hvort liðið ætlaði að taka frumkvæðið. “

Sami hefur verið frá um talsverðan tíma en upphaflega gerðu menn ráð fyrir að meiðsli hans yrðu þess valdandi að hann yrði frá í örfáar vikur. Önnur varð þó raunin og lék hann sinn fyrsta leik í tæpa tvo mánuði í dag. Hversu erfitt hefur verið að vera í stúkunni?

„Það hefur verið mjög erfitt. Ég hef aldrei glímt við meiðsli sem þessi fyrr á mínum ferli sem svona tíma að jafna sig á. Fyrir mig andlega hafa þetta verið erfiðar átta vikur og þá sérstaklega að horfa á liðsfélaga sína æfa og spila og geta ekki verið hluti af því en þetta er er hluti af leiknum og fylgir þessu.“

Sagði Sami en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner