Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   lau 09. maí 2020 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gary ekki komist í bað með Phil í samkomubanninu
Mynd: Getty Images
Gary Neville, sparkspekingur og fyrrum leikmaður Manchester United, hélt úti spurt og svarað á Twitter reikningi sínum í morgun. Hann fékk alls kyns spurningar og valdi leikinn á Nývangi árið 1999, þegar Manchester United vann Meistaradeildina á dramatískan hátt, sem eftirminnilegasta leikinn á ferlinum.

Hann fékk einnig skemmtilega spurningu frá Dale Whitehead. Whitehead spurði Gary á hvaða aldri hann og bróðir hans, Phil Neville, hafi hætt að fara í bað saman.

Gary fór í gríngírinn og sagði að það hefði fyrst gerst núna í samkomubanninu.


Athugasemdir
banner
banner