Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 17:09
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Ægir á toppinn eftir sigur á botnliðinu - Ólsarar unnu Þrótt V.
Ægismenn eru komnir á toppinn
Ægismenn eru komnir á toppinn
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Víkingur Ó. vann flottan sigur á Vogamönnum
Víkingur Ó. vann flottan sigur á Vogamönnum
Mynd: Víkingur Ó.
Grótta sótti sterkan útisigur fyrir austan
Grótta sótti sterkan útisigur fyrir austan
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KFG vann Kára
KFG vann Kára
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Víðr lagði Dalvík/Reyni
Víðr lagði Dalvík/Reyni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir tyllti sér á toppinn í 2. deild karla með 4-1 sigri liðsins á botnliði Hattar/Hugins í dag.

Ægir 4 - 1 Höttur/Huginn
1-0 Stefan Dabetic ('36 )
2-0 Dimitrije Cokic ('59 )
3-0 Atli Rafn Guðbjartsson ('60 )
3-1 Þórhallur Ási Aðalsteinsson ('71, víti )
4-1 Bjarki Rúnar Jónínuson ('83 )

Það tók Ægismenn dágóðan tíma að brjóta ísinn í dag, en það gerði Stefan Dabetic á 36. mínútu með glæsilegu marki úr aukaspyrnu.

Dimitrije Cokic og Atli Rafn Guðbjartsson bættu við tveimur mörkum á innan við mínútu þegar fimmtán mínútur voru liðnar af þeim síðari áður en Þórhallur Ási Aðalsteinsson minnkaði muninn úr vítaspyrnu.

Bjarki Rúnar Jónínuson fullkomnaði gott dagsverk hjá Ægi með marki á 83. mínútu og þar við sat. Ægir komið í toppsæti með 16 stig, einu stigi meira en Þróttur V. sem tapaði fyrir Víking Ólafsvík, 2-0. Höttur/Huginn er áfram á botninum með 2 stig.

Ægir Andri Þór Grétarsson (m), Stefan Dabetic, Aron Fannar Hreinsson, Atli Rafn Guðbjartsson, Jordan Adeyemo, Dimitrije Cokic, Sigurður Óli Guðjónsson, Einar Breki Sverrisson, Benedikt Darri Gunnarsson, Baptiste Gateau, Bjarki Rúnar Jónínuson
Varamenn Ísak Aron Ómarsson, Jón Jökull Þráinsson, Bilal Kamal, Aron Daníel Arnalds, Ivan Rodrigo Moran Blanco, Aron Óskar Þorleifsson (m)

Höttur/Huginn Gerard Tomas Iborra (m), André Musa Solórzano Abed, Eyþór Magnússon, Genis Arrastraria Caballe, Danilo Milenkovic, Þórhallur Ási Aðalsteinsson, Bjarki Fannar Helgason, Stefán Ómar Magnússon, Kristófer Máni Sigurðsson, Sæþór Ívan Viðarsson, Kristján Jakob Ásgrímsson
Varamenn Þór Albertsson, Rafael Llop Caballe, Kristófer Páll Viðarsson, Bjarki Nóel Brynjarsson, Ívar Logi Jóhannsson, Árni Veigar Árnason, Brynjar Smári Ísleifsson (m)

KFA 2 - 3 Grótta
1-0 Marteinn Már Sverrisson ('15 , Mark úr víti)
1-1 Valdimar Daði Sævarsson ('28 , Mark úr víti)
1-2 Daði Már Patrekur Jóhannsson ('67 )
2-2 Javier Montserrat Munoz ('78 )
2-3 Valdimar Daði Sævarsson ('90 )

Grótta vann öflugan 3-2 útisigur á KFA á SÚN-vellinum á Neskaupstað.

Mareinn Már Sverrisson kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum og fengu gestirnir einnig vítaspyrnu sem Valdimar Daði Sævarsson skoraði úr.

Daði Már Patrekur Jóhannsson kom Gróttu yfir áður en Javier Munoz jafnaði fyrir KFA, en það voru gestirnir sem áttu síðasta orðið er Valdimar gerði annað mark sitt og tryggði Seltirningum sigurinn.

Sigur Gróttu þýðir að liðið er áfram í 3. sæti en nú með 14 stig, aðeins tveimur stigum frá toppnum en KFA í 8. sæti með 8 stig.

KFG 3 - 1 Kári
1-0 Elvar Máni Guðmundsson ('9 )
2-0 Kristján Ólafsson ('47 )
3-0 Bóas Heimisson ('54 )
3-1 Mikael Hrafn Helgason ('76 )

KFG vann Kára, 3-1, á Samsung-vellinum í Garðabæ. Heimamenn komust í þriggja marka forystu í leiknum, en það var Elvar Máni Guðmundsson sem kom KFG á bragðið á 9. mínútu áður en Kristján Ólafsson og Bóas Heimisson bættu við forystuna á sjö mínútna kafla í byrjun síðari.

Mikael Hrafn Helgason minnkaði muninn fyrir Kára þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en lengra komust gestirnir ekki og góður sigur KFG í höfn.

KFG er í 10. sæti með 7 stig en Kári í næst neðsta sæti með 6 stig.

KFG Guðmundur Rafn Ingason (m), Arnar Ingi Valgeirsson, Róbert Kolbeins Þórarinsson, Magnús Andri Ólafsson (52'), Kristján Ólafsson (66'), Elvar Máni Guðmundsson, Bóas Heimisson, Daníel Darri Þorkelsson, Guðmundur Thor Ingason, Dagur Óli Grétarsson (82'), Adrían Baarregaard Valencia (66')
Varamenn Stefán Alex Ríkarðsson, Benedikt Pálmason (66'), Atli Freyr Þorleifsson, Arnar Darri Þorleifsson, Djordje Biberdzic (52'), Eyþór Örn Eyþórsson (82'), Ólafur Bjarni Hákonarson (66')

Kári Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m), Marinó Hilmar Ásgeirsson, Tómas Týr Tómasson, Hektor Bergmann Garðarsson (57'), Birkir Hrafn Samúelsson, Máni Berg Ellertsson, Sveinn Svavar Hallgrímsson (66'), Kristian Mar Marenarson, Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson, Matthías Daði Gunnarsson (57'), Börkur Bernharð Sigmundsson (57')
Varamenn Gísli Fannar Ottesen, Sigurjón Logi Bergþórsson (57), Mikael Hrafn Helgason (57), Marteinn Theodórsson (66), Oskar Wasilewski (57), Kasper Úlfarsson (m)

Víðir 1 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Daniel Beneitez Fidalgo ('90 )

Víðismenn lögðu Dalvík/Reyni að velli, 1-0, á Nesfisk-vellinum.

Daniel Beneitez Fidalgo var hetja heimamanna með sigurmarki undir lok leiks.

Víðir er í 9. sæti með 8 stig en Dalvík/Reynir í 5. sæti með 10 stig.

Víðir Jón Garðar Arnarsson (m), Cameron Michael Briggs, Alexis Alexandrenne, Markús Máni Jónsson, David Toro Jimenez (74'), Uros Jemovic, Cristovao A. F. Da S. Martins, Björgvin Freyr Larsson (81'), Haraldur Smári Ingason, Dominic Lee Briggs, Kristófer Snær Jóhannsson (61')
Varamenn Dusan Lukic (81'), Paolo Gratton (61'), Daniel Beneitez Fidalgo (74'), Tómas Freyr Jónsson, Eyþór Ingi Einarsson, Þórir Guðmundsson, Jón Orri Sigurgeirsson (m)

Dalvík/Reynir Auðunn Ingi Valtýsson (m), Rúnar Helgi Björnsson, Hákon Atli Aðalsteinsson, Miguel Joao De Freitas Goncalves, Martim Fortuna Soares Sequeira Cardoso, Borja Lopez Laguna (76'), Remi Marie Emeriau (76'), Alex Máni Gærdbo Garðarsson (91'), Gunnlaugur Rafn Ingvarsson, Áki Sölvason, Sævar Þór Fylkisson (63')
Varamenn Þröstur Mikael Jónasson (63), Sindri Sigurðarson (76), Bjarmi Fannar Óskarsson, Tómas Þórðarson (76), Hjörtur Freyr Ævarsson, Bjarmi Már Eiríksson (91), Ísak Andri Maronsson Olsen (m)

Víkingur Ó. 2 - 0 Þróttur V.
1-0 Luke Williams ('24 )
2-0 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('44 )

Víkingur Ó. vann annan leik sinn á tímabilinu er það lagði topplið Þróttar V, 2-0, á Ólafsvíkurvelli.

Luke Williams og Ingvar Freyr Þorsteinsson skoruðu mörk Ólsara í fyrri hálfleiknum.

Annar sigur deildarinnar staðreynd og eru Ólsarar nú með 9 stig í 6. sæti en Þróttur í öðru sæti með 15 stig.

Víkingur Ó. Jón Kristinn Elíasson (m), Ingvar Freyr Þorsteinsson, Gabriel Þór Þórðarson, Daði Kárason, Ivan Lopez Cristobal, Luke Williams (90'), Luis Romero Jorge (89'), Björn Darri Ásmundsson (46'), Luis Alberto Diez Ocerin, Björn Henry Kristjánsson (71'), Kwame Quee (90')
Varamenn Anel Crnac (71'), Brynjar Óttar Jóhannsson, Reynir Már Jónsson (90'), Ingólfur Sigurðsson (90'), Ellert Gauti Heiðarsson (89'), Asmer Begic (46'), Kristall Blær Barkarson (m)

Þróttur V. Jökull Blængsson (m), Ólafur Örn Eyjólfsson, Auðun Gauti Auðunsson, Hilmar Starri Hilmarsson, Guðni Sigþórsson, Jóhannes Karl Bárðarson, Eyþór Orri Ómarsson, Jón Kristinn Ingason (64'), Ásgeir Marteinsson, Rúnar Ingi Eysteinsson, Kostiantyn Pikul
Varamenn Hreinn Ingi Örnólfsson, Anton Breki Óskarsson, Jón Veigar Kristjánsson, Almar Máni Þórisson, Jón Jökull Hjaltason, Birgir Halldórsson, Rökkvi Rafn Agnesarson (m)
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Ægir 7 5 1 1 16 - 8 +8 16
2.    Þróttur V. 7 5 0 2 11 - 6 +5 15
3.    Grótta 7 4 2 1 12 - 7 +5 14
4.    Haukar 7 4 2 1 12 - 8 +4 14
5.    Dalvík/Reynir 7 3 1 3 8 - 5 +3 10
6.    Víkingur Ó. 7 2 3 2 12 - 9 +3 9
7.    Kormákur/Hvöt 7 3 0 4 7 - 14 -7 9
8.    KFA 7 2 2 3 15 - 12 +3 8
9.    Víðir 7 2 2 3 8 - 9 -1 8
10.    KFG 7 2 1 4 11 - 14 -3 7
11.    Kári 7 2 0 5 7 - 12 -5 6
12.    Höttur/Huginn 7 0 2 5 5 - 20 -15 2
Athugasemdir
banner
banner