Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Barcola efstur á óskalista FC Bayern
Barcola átti frábært tímabil með PSG en er í erfiðri baráttu um byrjunarliðssæti.
Barcola átti frábært tímabil með PSG en er í erfiðri baráttu um byrjunarliðssæti.
Mynd: EPA
Bradley Barcola kantmaður Paris Saint-Germain og franska landsliðsins er efstur á óskalista FC Bayern í sumar.

Barcola, sem verður 23 ára í september, er ekki öruggur með byrjunarliðssæti hjá PSG þrátt fyrir að búa yfir gríðarlegum hæfileikum. Hann er í harðri byrjunarliðsbaráttu við Khvicha Kvaratskhelia, Ousmane Dembélé og Désiré Doué sem eru ofar í goggunarröðinni sem stendur. Þá má ekki gleyma að Lee Kang-in er einnig samningsbundinn félaginu.

Barcola er vinstri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað á hægri kanti eða í fremstu víglínu.

PSG vill ekki selja Barcola þó að hann sé ekki með fast sæti í byrjunarliðinu. Kantmaðurinn kom að 40 mörkum í 58 leikjum á nýliðnu tímabili og sýndi frábærar frammistöður.

Takist Bayern ekki að krækja í Barcola hefur félagið áhuga á fjórum öðrum kantmönnum, þeim Nico Williams, Kaoru Mitoma, Rafael Leao og Cody Gakpo.
Athugasemdir
banner