Margir leikmenn eru á förum frá enska úrvalsdeildarfélaginu Everton um mánaðamótin en félagið uppfærði stöðuna á samningamálunum á vefsíðu sinni í dag.
Idrissa Gana Gueye og Seamus Coleman fá báðir nýjan samning hjá félaginu.
Gueye er 35 ára gamall miðjumaður sem hefur samtals spilað með Everton í sex ár. Hann lék með liðinu frá 2016 til 2019 áður en hann var seldur til Paris Saint-Germain, en sneri aftur árið 2022 og verið burðarás í liðinu.
Hinn 36 ára gamli Coleman fær einnig nýjan samning. Hann er lang reyndasti leikmaður Everton-liðsins og spilað með því frá 2009 og verið fyrirliði liðsins frá 2019.
Everton greinir frá því að félagið sé enn í viðræðum við umboðsmenn Dominic Calvert-Lewin og Michael Keane um nýjan samning, en samkvæmt Times mun Calvert-Lewin fara um mánaðamótin og verður greint frá þeirri ákvörðun á næstu dögum.
Abdoulaye Doucoure, Ashley Young, Joao Virginia, Asmir Begovic, Mason Holgate og Neal Maupay eru allir á förum.
Jack Harrison, Jesper Lindström, Orel Mangala og Armando Broja voru allir á láni hjá félaginu á tímabilinu, en það er einnig ljóst að þeir verða ekki áfram og snúa því aftur til sinna félaga.
We are offering contracts to Seamus Coleman and Idrissa Gana Gueye, while we continue to liaise with representatives of Michael Keane and Dominic Calvert-Lewin. ????
— Everton (@Everton) June 9, 2025
Athugasemdir