Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 13:29
Brynjar Ingi Erluson
Rodrygo ekki á förum alveg strax
Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Rodrygo verður áfram hjá Real Madrid, að minnsta kosti næsta mánuðinn, en þetta kemur fram á Sky Sports í dag.

Talið er að Real Madrid vilji losa sig við Rodrygo fyrir næstu leiktíð og er Arsenal sagt leiða kapphlaupið um hann.

Sky segir að Arsenal muni þurfa að sýna þolinmæði ef það ætlar að fá Rodrygo, en Real Madrid ætlar að nýta krafta hans á HM félagsliða sem hefst eftir nokkra daga.

Mótið klárast ekki fyrr en um miðjan júlí og er óvíst hvort Arsenal sé tilbúið að bíða.

Félagið er einnig með Morgan Rogers, leikmann Aston Villa, og Nico Williams, leikmann Athetic Bilbao, á lista.
Athugasemdir
banner