Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   fös 10. september 2021 19:02
Victor Pálsson
Danmörk: Elías Rafn lagði upp fyrir Midtjylland
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjylland í kvöld sem spilaði við Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni.

Jonas Lössl er aðalmarkvörður Midtjylland en hann er frá þessa stundina og fær Elías því að spila.

Þessi efnilegi strákur stóð sig með prýði í 2-0 sigri og lagði á meðal annars upp annað mark liðsins.

Annað mark Midtjylland var skorað á 76. mínútu og er stoðsendingin skráð á Elías sem er ansi vel gert.

Þetta var sjötti sigur Midtjylland í sumar og er liðið nú á toppnum með 18 stig þegar átta leikir eru búnir.

Elías spilaði síðast 90 mínútur með Midtjylland gegn Silkeborg þann 20. ágúst.
Athugasemdir
banner
banner