Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. mars 2023 14:45
Aksentije Milisic
Vieira hefur áhyggjur - Palace ekki unnið leik á árinu
Vieira og Zaha.
Vieira og Zaha.
Mynd: EPA

Patrick Vieira, stjóri Crystal Palace, viðurkennir að hann hefur áhyggjur af gengi liðsins en Palace hefur ekki unnið einn einasta leik á þessu ári.


Síðasti sigur liðsins kom gegn Bournemouth þann 31. desember í fyrra en þrátt fyrir þetta dapra gengi er liðið í tólfta sæti deildarinnar. Það er hins vegar farið að styttast í fallsvæðið en liðið er fimm stigum frá því.

Crystal Palace á erfitt verkefni fyrir höndum í dag en þá koma Englandsmeistararnir í Manchester City í heimsókn á Selhurst Park.

„Ef ég myndi sitja hérna og segja þér að ég hefði engar áhyggjur, þá væri ég að ljúga," sagði Vieira.

„Auðvitað höfum við áhyggjur, við vitum í hvaða stöðu við erum. Við verðum að halda ró okkar og trúa því að hlutirnir muni snúast."

„Pressa? Ég hef haft pressu á mér síðan ég skrifaði undir hjá þessu félagi. Enska úrvalsdeildin snýst um þetta. Það er pressa á öllum að skila sínu, ég er ekkert öðruvísi."

Palace hefur gengið vel gegn Man City í gegnum árin og spurning hvort það haldi áfram í dag. Liðið hefur gert fimm jafntefli og tapað fimm það sem af er þessu ári.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner