Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 12. janúar 2023 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið hjá Sveini Aroni gegn Svíum - Klikkaði á punktinum en bætti síðan upp fyrir það
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland leiðir gegn Svíþjóð, 1-0, í vináttulandsleik á Algarve í Portúgal en Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði markið.

Íslenska liðið átti álitlega sókn sem endaði hjá Sævari Atla Magnússyni en skot hans var varið í slá áður en varnarmaður Svía handlék knöttinn innan teigs er hann reyndi að hreinsa.

Vítaspyrna dæmd og Sveinn Aron á punktinn. Jacob Widell Zetterström, markvörður Svía, varði slaka spyrnu Sveins, en það kom ekki að sök þar sem boltinn datt aftur fyrir Svein sem skoraði örugglega úr frákastinu.

Staðan er enn 1-0 þegar tuttugu mínútur eru eftir en markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner