Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 12. mars 2023 14:19
Brynjar Ingi Erluson
Pogba ekki með í dag vegna meiðsla
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Paul Pogba verður ekki með Juventus gegn Sampdoria í Seríu A í kvöld.

Pogba kom aftur til Juventus frá Manchester United síðasta sumar en meiddist illa og þurfti að gangast undir aðgerð.

Það hefur komið bakslag ofan á bakslag á tíma hans hjá Juventus en hann virtist hafa losað sig endanlega við meiðslin í síðasta mánuði.

Hann hefur komið við sögu í síðustu tveimur deildarleikjum en var ekki með í Evrópudeildinni á dögunum vegna agabrots og nú er ljóst að hann verður ekki með gegn Sampdoria vegna meiðsla í vöðva.

Ekki er ljóst hversu lengi hann verður frá í þetta sinn en þetta tímabil hefur verið mikil vonbrigði fyrir bæði hann og Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner