
Grindvíkingar tóku á móti liði Þórs á Stakkavíkurvellinum fyrr í kvöld.
Leikurinn var nokkuð jafn heilt yfir og fór svo að lokum að liðin skildu jöfn 1-1. Helgi Sigurðsson þjálfari Grindavíkur var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum.
Leikurinn var nokkuð jafn heilt yfir og fór svo að lokum að liðin skildu jöfn 1-1. Helgi Sigurðsson þjálfari Grindavíkur var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum.
Lestu um leikinn: Grindavík 1 - 1 Þór
„Mér fannst við vera betri í heildina. Við fengum miklu fleiri færi en þeir en fáum síðan á okkur mark á slæmum tímapunkti í síðari hálfleik þegar við vorum ofan á í leiknum. Allt kredit þó á strákanna að við náum að snúa því við og jafna leikinn.“ Sagði Helgi um leikinn en lið Grindavíkur hefur verið í miklu basli með að sækja sigra á heimavelli í sumar.
Fréttaritari Fótbolta.net hefur verið fastagestur því sem næst á leikjum Grindavíkur undanfarin ár og merkti ákveðna framför í leik Grindavíkur í kvöld miðað við undanfarna leiki á heimavelli. Liðið var að skapa sér fleiri og betri færi í kvöld en oft áður á Stakkavíkurvellinum og grunnur til að byggja á að myndast þótt sigurinn hafi ekki fallið þeirra megin í kvöld.
„Já það er það, við sköpuðum mikið af færum í dag. Áttum skot í slá og markvörður þeirra ver vel eftir hornspyrnu. Við fengum mjög mörg færi sem er jákvætt en við þurfum náttúrulega að skora fleiri mörk “ Sagði Helgi og bætti svo við.
„Það vantaði herslumunin sem hefur verið okkar akkilesarhæll í síðustu leikjum. En karakterinn í seinni hálfleik var mjög góður og mér fannst við betri aðilinn og áttum sigurinn skilið.“
Sagði Helgi en allt viðtalið má sjá hér að ofan þar sem hann meðal annars ræðir meiðsli og fjarveru lykilmanna.
Athugasemdir