Matarr ,,Nesta" Jobe skoraði frábært mark í 4-1 sigri Vals á Fram í Lengjubikarnum í kvöld. Nesta skoraði þá með hjólhestaspyrnu í kjölfarið á aukaspyrnu.
,,Þetta var klárlega besta mark sem ég hef skorað. Oftast þegar ég skora er það með skalla en í dag gerðist kraftaverk," sagði Nesta við Fótbolta.net eftir leik.
,,Ég horfði á Wayne Rooney gera þetta Manchester City og lærði þetta af honum. Ég hugsaði með mér að ég gæti kannski gert þetta einn daginn og það var í dag."
Nesta er bjartsýnn á að Valsmenn muni standa sig vel í Pepsi-deildinni í sumar. ,,Við verðum frábærir. Þjálfararnir okkar eru frábærir og við erum að leggja hart að okkur á hverjum degi. Við verðum vonandi framúrskarandi á þessu tímabili."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir























