
Íslenska karlalandsliðið mætti Lúxemborg í kvöld á Laugardalsvelli í undankeppni EM sem fram fer næsta sumar.
Íslenska liðið byrjaði af krafti og leiddu sanngjarnt í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik datt leikur liðsins niður og Lúxemborg jafnaði leikinn strax á upphafsmínútu síðari hálfleiks og þar við sat.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 1 Lúxemborg
„Eftir fyrri hálfleikinn hjá okkur, mér fannst við vera beinskeyttir og við erum að vinna þessa seinni bolta og erum að koma okkur í góða stöðu og þá sérstaklega vinstra meginn, Arnór og Hákon voru að leika sér þarna þannig við hefðum kannski getað nýtt okkur það örlítið betur og svo nátturlega byrjum við seinni hálfleikinn bara fáránlega og þar við sat einhvernveginn, þetta var allt svo fram og tilbaka og ekkert control í beinni." Sagði Arnór Ingvi Traustason leikmaður Íslenska liðsins svekktur eftir leikinn.
Íslenska liðið spilaði flottan fyrri hálfleik en það sama var ekki hægt að segja um þann síðari en hvað veldur?
„Það er frábær spurning, hefði ég vitað það þá hefði ég örugglega komið þeim skilaboðum áleiðis en þetta er eitthvað sem að ég veit ekki hvort að sé mental eða hvað það er en við þurfum að fara yfir þetta og læra af þessu. Þetta er ekki boðlegt og þá sérstaklega hérna heima."
Arnór Ingvi var að spila sinn 50. landsleik fyrir Ísland í kvöld.
„Ég er mjög stoltur að hafa spilað 50 landsleiki fyrir Ísland vonandi verða þeir fleirri bara."
Nánar er rætt við Arnór Ingva Traustason í spilaranum hér fyrir ofan.

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |