Logi Ólafsson hefur náð í sjö stig úr fyrstu þremur leikjunum og komið liðinu í 8-liða úrslit bikarsins síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá Víkingum. Eftir sigurinn gegn Stjörnunni var við hæfi að spyrja hann hversu ánægður hann væri með uppskeruna á skalanum 1-10?
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 Víkingur R.
„Þetta er alveg nía, solid nía. Það er afrek að koma hingað og vinna því Stjarnan hefur verið eitt besta lið deildarinnar í upphafi móts. Ég er virkilega ánægður með þetta," sagði Logi.
„Framlag drengjanna inni á vellinum skipti sköpum. Meðan við náum að stemma stigum við hornspyrnum og aukaspyrnum Stjörnunnar þá minnkarðu möguleika þeirra. Þeir skora markið sitt upp úr einu slíku og ég bað menn að forðast það að brjóta af sér á hættulegum stöðum og færa þeim horn."
Stjörnufólki í stúkunni fannst Víkingar grófir í leiknum.
„Ef leikurinn verður of grófur er það ekki liðunum að kenna. Það eru menn á launum hjá sambandinu við að stoppa hluti af. Það var enginn ásetningur hjá okkur að vera grófir, alls ekki."
Aðstoðarmaður Loga, Bjarni Guðjónsson, fékk brottvísun í lok leiks eftir orðaskipti milli hans og fjórða dómarans, Sigurðar Óla Þórleifssonar.
„Hann var í hrókasamræðum við Sigurð Óla. Í svona tilfellum finnst mér að dómarinn eigi ekki að vera í þessum viðræðum, hann á bara að stoppa þessar samræður og burtu með manninn. Mér finnst slæmt að hann hleypi þessu upp í rifrildi þeirra á milli og að hann geti svo sýnt honum rautt spjald," segir Logi en viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir