„Ég er mjög spennt. Þetta er spennandi verkefni og áhugaverðir leikir sem við erum að fara að spila," sagði varnarmaðurinn Ingibjörg Sigurðardóttir um riðilinn sem er framundan í undankeppni HM.
Ísland er í riðli með Þýskalandi, Tékklandi, Slóveníu og Færeyjum. Fyrsti leikur er gegn Færeyjum á Laugardalsvelli annað kvöld.
„Fyrirfram erum við með sterkara lið á blaði. Við þurfum að mæta einbeittar til leiks. Þetta er áskorun fyrir okkur að sýna hversu sterkt lið við erum og halda standarinum upp," sagði Ingbjörg.
Ingibjörg kom inn í landsliðið á þessu ári og spilaði fyrstu tvo leikina á EM í Hollandi. Hún er ánægð með innkomu sína í landsliðið.
„Ég er frekar ánægð. Þetta hefur gengið mjög vel hjá mér. Ég hef lært mjög mikið á stuttum tíma og er komin með ný markmið núna. Ég veit hvernig ég þarf að bæta mig til að vera áfram í þessum hópi."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir






















