Newcastle leitar að mögulegum arftaka Isak - Man City aftur á eftir Livramento - Shaw til Sádi-Arabíu?
   lau 26. júlí 2025 06:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndaveisla: Frábært kvöld fyrir HK
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
HK vann í gær 1-0 heimasigur á Leikni í 14. umferð Lengjudeildarinnar. Það var Dusan Brkovic sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir rúmlega 20 mínútna leik og reyndist það eina mark leiksins.

Á undan því hafði Ólafur Örn Ásgeirsson, markvörður HK, varið vítaspyrnu frá Shkelzen Veseli.

Lestu um leikinn: HK 1 -  0 Leiknir R.

Gærkvöldið var frábært fyrir HK því fjögur af fimm liðum í kringum HK töpuðu stigum. Þór og Keflavík gerðu velli og sömuleiðis toppliðin Njarðvík og ÍR. HK er nú tveimur stigum frá toppliði ÍR.

Haukur Gunnarsson tók meðfylgjandi myndir í Kórnum.
Athugasemdir
banner
banner