Isak til Liverpool og Sesko til Newcastle - Aston Villa segir nei við United - Bayern ætlar sér að fá Díaz
   fös 25. júlí 2025 19:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: Vítaklúður í blálokin í Keflavík
Lengjudeildin
Sigfús Fannar skoraði níunda deildarmark sitt í dag
Sigfús Fannar skoraði níunda deildarmark sitt í dag
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Keflavík 2 - 2 Þór
1-0 Ásgeir Páll Magnússon ('20 )
1-1 Christian Jakobsen ('35 )
1-2 Sigfús Fannar Gunnarsson ('56 )
2-2 Marin Brigic ('67 )
2-2 Muhamed Alghoul ('90 , misnotað víti)
Lestu um leikinn

Keflavík fékk Þór í heimsókn í áhugaverðum leik í Lengjudeildinni í kvöld. Keflavík var í 6. sæti með 21 stiig en Þór í 4. sæti með 23 stig fyrir leikinn.

Þór byrjaði leikinn betur en það voru heimamenn sem komust yfir. Ásgeir Páll Magnússon kom boltanum í netið eftir hornspyrnu frá Muhamed Alghoul.

Christian Jakobsen jafnaði metin fyrir Þór en þetta er fyrsta mark hans fyrir liðið. Hann kom til liðsins frá Hvidövre í Danmörku fyrr í þessum mánuði.

Hann var nálægt því að koma Þór yfir undir lok fyrri hálfleiks en boltinn rétt framhjá markinu.

Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði níunda deildarmarkið sitt þegar hann kom Þór yfir eftir tæplega klukkutíma leik. Aftur tókst Keflvíkingum að nýta sér hornspyrnu þegar Marin Brigic var einn og óvaldaður inn á teignum og jafnaði metin.

Muhamed Alghoul fékk gullið tækifæri til að tryggja Keflvíkingum sigur þegar liðið fékk vítaspyrnu í blálokin. Hann fór hins vegar illa að ráði sínu og skaut yfir markið.

Jafntefli niðurstaðan sem þýðir að Þór jafntar HK að stigum í 3. sæti með 24 stig og Keflavík fer upp fyrir Þrótt í 5. sæti en bæði lið eru með 22 stig sem stendur.
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 14 8 5 1 26 - 12 +14 29
2.    Njarðvík 14 7 7 0 33 - 14 +19 28
3.    HK 14 8 3 3 26 - 15 +11 27
4.    Þróttur R. 14 7 4 3 26 - 22 +4 25
5.    Þór 14 7 3 4 32 - 22 +10 24
6.    Keflavík 14 6 4 4 32 - 24 +8 22
7.    Völsungur 13 4 2 7 20 - 30 -10 14
8.    Grindavík 14 4 2 8 29 - 40 -11 14
9.    Selfoss 13 4 1 8 15 - 25 -10 13
10.    Fylkir 14 2 5 7 19 - 24 -5 11
11.    Fjölnir 14 2 4 8 21 - 35 -14 10
12.    Leiknir R. 14 2 4 8 13 - 29 -16 10
Athugasemdir
banner
banner