Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   lau 20. nóvember 2021 12:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nuno Tavares: Salah veit ekki hver ég er
Mynd: EPA
Liverpool fær Arsenal í heimsókn í síðdegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Arsenal hefur verið á miklu skriði í deildinni að undanförnu en liðið byrjaði vægast sagt illa í upphafi tímabils. Lundúnarliðið hefur ekki tapað í 8 leikjum í röð.

Hinn 21 árs gamli vinstri bakvörður Nuno Tavares gekk til liðs við Arsenal í sumar frá Benfica. Hann hræðist engann en hann mun mæta Mohamed Salah ef hann spilar í dag.

„Ef ég spila, spila ég gegn Salah. Ég hræðist engann. Ég spila fyrir Arsenal," sagði Tavares.

Aðspurður hvort Salah sé hræddur við sig sagði hann: „Það held ég ekki. Hann veit ekki hver ég er.“
Athugasemdir
banner
banner