Sádar búast við því að Salah fari frá Liverpool í sumar - Vicario á blaði hjá Inter - Palace hefur rætt við Úlfana um Strand Larsen
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Annar hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Fyrsti hluti
Fékk Skagaelítuna á bakið - „Eflaust brotið einhver hjörtu hefði ég ekki komið“
Tekur við eftir að leikmenn neituðu að spila fyrir félagið
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
banner
   fim 21. júní 2018 22:16
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Kristján Ómar: Áttum ekkert skilið úr þessum leik
Kristján Ómar Björnsson, þjálfari Hauka.
Kristján Ómar Björnsson, þjálfari Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrstu viðbrögð, alltof mikið af mörkum. Alltof mikið af auðveldum mörkum sem við erum að fá á okkur," sagði Kristján Ómar Björnsson, þjálfari Hauka, eftir 5-2 tap hans manna fyrir Þrótti á Ásvöllum.

Lestu um leikinn: Haukar 2 -  5 Þróttur R.

„Mörkin hefðu mögulega getað verið fleiri ef maður á að vera raunsær. Eins furðulegt og það hljómar þá var margt ágætt í gangi í sóknarleiknum hjá okkur en þá eitthvern veginn þurfti varnarleikurinn að gjörsamlega molna niður í ekki neitt og við áttum í rauninni ekki neitt skilið út úr þessum leik, nákvæmlega ekki neitt."

„Fyrstu 20-25 mínúturnar þá gerðum ekki nokkur maður eitt einasta atriði sem ég bað þá um að gera. Við vöknuðum eitthvað örlítið til lífsins þegar það leið eitthvað á hálfleikinn og við byrjuðum náttúrulega seinni hálfleikinn mjög vel, komum okkur inn í leikinn, skorum mark og mér fannst svona aðeins rikta í hjá þeim. Svo svona kæfðu þeir það með því að setja mark í andlitið á okkur aftur þegar við vorum farnir að færa okkur upp á skaftið.

„Svo tökum við smá sénsa í lokinn og fáum á okkur náttúrulega bara eitt svona gefins mark úr eitthverju breiki en sigurinn þeirra var sanngjarn."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner