Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. febrúar 2023 23:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir Fulham og Wolves: Solomon er funheitur varamaður
Mynd: Fulham

Fulham og Wolves gerðu jafntefli í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.


Wolves var sterkari aðilinn í upphafi leiks og Pablo Sarabia kom liðinu sanngjarnt í forystu eftir undirbúning Raul Jimenez. Þeir fá báðir 7 í einkunn hjá Sky Sports.

Manor Solomon skoraði í þriðja leiknum í röð eftir að hafa komið inn á sem varamaður en hann kom inn á strax í hálfleik í kvöld og skoraði laglegt mark sem tryggði Fulham stig.

Hann fær átta í einkunn, Harry Wilson og Sasa Lukic komu einnig sterkir inn á af bekknum. Harrison Reed átti ekki góðan leik og fór útaf í hálfleik. Ásamt honum fékk Bobby Decordova Reed fimm í einkunn.

Fulham: Leno (6), Tete (7), Diop (6), Ream (7), Antonee Robinson (6), Reed (5), Joao Palhinha (6), Reid (5), Andreas Pereira (6), Willian (6), Vinicius (6).

Varamenn: Wilson (7), Solomon (8), Lukic (7).

Wolves: Jose Sa (7), Nelson Semedo (6), Dawson (6), Kilman (7), Bueno (7), Sarabia (7), Lemina (6), Neves (7), Matheus Nunes (6), Jimenez (7), Matheus Cunha (6).

Varamenn: Daniel Podence (n/a), Joao Moutinho (n/a), Costa (5), Adama Traore (6).


Athugasemdir
banner
banner