Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. febrúar 2023 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Guti stráði salti í sár Börsunga - „Sumt breytist ekki"
Mynd: Getty Images
Barcelona er úr leik í Evrópudeildinni eftir að hafa tapað fyrir Manchester United í umspili fyrir 16-liða úrslitin í gær en átta ár eru síðan liðið vann síðast Evrópubikar.

Fred og Antony sáu til þess að Manchester United tæki sætið í 16-liða úrslitum í gær og því enn ein vonbrigðin fyrir Börsunga.

Barcelona vann síðast Meistaradeildina árið 2015 en síðan þá hefur árangurinn verið lítill sem enginn.

Liðið hefur verið í lægð síðustu ár þegar það kemur að Evrópukeppnum og sá Guti, fyrrum leikmaður Real Madrid, tækifæri til að strá salti í sárin.

„Jæja, sumt breytist ekki,“ sagði Guti eftir tap Barcelona.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner