Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 24. febrúar 2023 19:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lopetegui: Fulham er með ellefu góða leikmenn
Mynd: EPA

Aleksandar Mitrovic framherji Fulham er fjarverandi vegna meiðsla þegar liðið fær Wolves í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.


Þetta er annar leikurinn í röð sem hann er ekki með en hann er markahæsti leikmaður liðsins með 11 mörk. Julen Lopetegui stjóri Wolves fer ekki fram úr sér þó það vanti svo mikilvægan leikmann í lið andstæðingana.

„Við hugsum ekki aðeins um einn leikmann, þeir spiluðu gegn Brighton án Mitrovic og unnu. Þeir eiga mjög góða leikmenn, þeir munu spila 11 góðum leikmönnum. Við erum vel undirbúnir fyrir leikinn og hugsum ekki bara um einn leikmann," sagði Lopetegui.

„Eins og alltaf er hver einasti leikur í úrvalsdeildinni erfiður en það er möguleiki fyrir okkur, við erum að fara spila á móti einu af heitustu liðum deildarinnar. Þeir eru að spila mjög vel. Við berum virðingu fyrir öllum liðum, þeir eru í göðri stöðu en við förum þangað með það markmið að eiga góðan leik."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner