Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   lau 24. apríl 2021 08:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Upphitunarþáttur Pepsi Max á X977 í dag - Spáin opinberuð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Upphitunarþáttur Pepsi Max-deildarinnar verður á dagskrá á X977 milli 12 og 14 í dag, laugardag.

Hitað verður upp fyrir tímabilið. Elvar Geir, Tómas Þór og Úlfur Blandon skoða öll liðin tólf.

Hverjir verða bestu menn mótsins? Hvaða sögulínur eru í aðsigi?

Hulunni verður svipt af spá Fótbolta.net fyrir þrjú efstu sæti deildarinnar.

Verið með okkur í þráðbeinni útsendingu frá Suðurlandsbraut.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner