Skoski bakvörðurinn Andy Robertson hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Liverpool.
Robertson er því samningsbundinn fram á sumarið 2026 en gamli samningurinn var til ársins 2024.
Robertson er örvfættur og gekk í raðir Liverpool árið 2017 frá Hull. Hann hefur verið einn allra besti bakvörður deildarinnar undanfarin ár, hann og Trent Alexander-Arnold oft nefndir sem besta bakvarðapar úrvalsdeildarinnar.

Robertson er 27 ára gamall og uppalinn hjá Celtic. Hann hefur glímt við meiðsli í upphafi leiktíðar en var mættur á varamannabekkinn í leik Liverpool gegn Burnley á laugardag.
Næsti leikur Liverpool er gegn Chelsea um komandi helgi.
Athugasemdir