Stefano Pioli, þjálfari AC Milan, heldur að Tyrkinn Hakan Calhanoglu, vilji vera áfram hjá liðinu.
Hakan hefur verið orðaður burt frá Milan að undanförnu en samningsviðræður eru í gangi á milli hans og liðsins.
AC Milan vann Lazio í gær og er liðið taplaust á toppi deildarinnar. Calhanoglu hefur verið frábær á þessu ári með Milan og vonast Pioli eftir því að hann fari ekki fet.
„Hann er tæknilega frábær. Frábær leikmaður sem veit alltaf hvað hann á að gera. Háklassa leikmaður," sagði Pioli.
„Ég held að hann sé ánægður hér. Viðræðurnar er í gangi og við viljum öll sama hlutinn."
Athugasemdir