Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. febrúar 2023 15:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Afturelding kom til baka manni færri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grótta 1-1 Afturelding
1-0 Patrik Orri Pétursson ('73 )
1-1 Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('90 )


Grótta og Afturelding skildu jöfn í leik liðanna í riðli þrjú í A deild.

Staðan var markalaus í hálfleik en Patrik Orri Pétursson kom Gróttu yfir og stuttu síðar fékk Gunnar Bergmann Sigmarsson rautt spjald í liði Aftureldingar.

Einum manni færri tókst Afturelding að jafna metin í uppbótartíma en þar var að verki Bjarni Páll Linnet Runólfsson.

Þetta var fyrsta stig Aftureldingar eftir þrjá leiki en Grótta er með þrjú stig eftir fjóra leiki.


Athugasemdir
banner
banner