Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. febrúar 2023 13:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Haurits hetja HK
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

HK 1-0 ÍA
1-0 Oliver Haurits ('90 )


HK er komið í 2. sæti í riðli eitt í A deild Lengjubikarsins eftir sigur á ÍA í Kórnum í dag.

Þetta er annar leikur dagsins en það er leikið á flestum vígstöðum í Lengjubikarnum í dag.

Oliver Haurits skoraði eina mark leiksins með skalla eftir fyrirgjöf frá Örvari Eggertsyni á lokamínútum leiksins.

HK er með sex stig eftir þrjá leiki en ÍA með þrjú stig.


Athugasemdir
banner
banner