Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 25. febrúar 2023 16:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Pætur með tvö í öruggum sigri KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA 5-0 Þróttur
1-0 Pætur Petersen
2-0 Pætur Petersen
3-0 Harley Willard
4-0 Daníel Hafsteinsson
5-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson


KA fékk Þrótt í heimsókn í riðli fjögur í A deild Lengjubikarsins í dag. Það var markalaust í hálfleik en allar flóðgáttir opnuðust í þeim síðari.

Pætur Joensson Petersen skoraði tvö fyrstu mörk KA. Harley Willard bætti þriðja markinu við áður en Daníel Hafsteinsson skoraði fjórða markið.

Hallgrímur Mar Steingrímsson negldi síðan síðasta naglann í kistu Þróttara. 5-0 lokatölur.

Eftir jafntefli Keflavíkur gegn Fylki fyrr í dag er KA á toppi riðilsins með níu stig eftir fjóra leiki. Þróttur er á botninum með 0 stig eftir þrjá leiki.


Athugasemdir
banner
banner
banner