Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. febrúar 2023 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neville reynir allt til að fá Messi til Miami
Mynd: EPA

Miklar vangaveltur eru um framtíð Lionel Messi en hann hefur meðal annars verið orðaður við Inter Miami í MLS deildinni í Bandaríkjunum.


Phil Neville stýrir Miami en hann felur ekki áhuga sinn á Messi og fyrrum samherja hans hjá Barcelona, Sergio Busquets.

„Ég ætla ekki að segja að það sé enginn sannleikur í þeim vangaveltum að við höfum áhuga á Lionel Messi og Sergio Busquets. Síðan ég kom til Miami höfum við sennilega verið orðaðir við alla topp leikmenn í heiminum," sagði Neville.

„Við munum alltaf vera orðaðir við bestu leikmenn heims. Við vorum með Gonzalo Higuain og Blaise Matuidi. Nú höfum við tækifæri til að ná í nýja leikmenn sem eru á síðustu metrunum á ferlinum."


Athugasemdir
banner
banner
banner