„Við hefðum þurft að nýta færin okkar í fyrri hálfleik of og skora allavega eitt mark. Við hefðum hæglega getað skorað tvö ef jafmvel þrjú en ég hefði verið sáttur með eitt. En það beit okkur í rassin í seinni hálfleik.“
Sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR eftir 1-0 tap KR gegn Breiðablik fyrr í kvöld þar sem nokkur dauðafæri fóru í súgin hjá KR í fyrri hálfleik.
Sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR eftir 1-0 tap KR gegn Breiðablik fyrr í kvöld þar sem nokkur dauðafæri fóru í súgin hjá KR í fyrri hálfleik.
Lestu um leikinn: KR 0 - 1 Breiðablik
Blikar mættu ákveðnir til leiks og mættu heimamönnum fast á vellinum. Kom það Rúnari og leikmönnum að einhverju leyti á óvart hvernig Blikar mættu þeim?
„Nei alls ekki. Þeir gerðu þetta hérna í fyrra og eru búnir að læra hvernig á að spila á móti okkur og Óskar talaði um það við ræddum að það í fyrra. Þetta er bara leið fyrir þá að ná í stig á móti okkur í fyrra jafntefli og nú vinna þeir okkur og það er bara flott fyrir þá.“
Eins mörg færi og KR tókst að skapa sér í fyrri hálfleik gekk þeim að sama skapi illa að skapa sér nokkuð í þeim síðari. Rúnar gerði aðeins eina skiptingu í leiknum. Var breiddin að stŕiða og hefði hann viljað hafa úr meiru að moða á bekknum?
„Já ég hefði vissulega viljað það og breiddin aðeins að stríða okkur en engu að síður þá erum við mikið með boltann en mér fannst sendingarnar stundum einum of langar, stundum með vitlaust heimilisfang og í vitlausar áttir en Blikar bökkuðu mjög neðarlega á völlinn og lokuðu svæðum og við áttum erfitt með að finna glufur.“
Sagði Rúnar en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir