
,,Ég mun alltaf mæla með Ragga sem þjálfara, hann er gríðarlega faglegur. Ég hringdi í hann í gær og við áttum gott samtal. Hann kom klárlega til greina.''

,,,Það var rætt mjög stuttlega og eitt af atriðunum á fyrstu fundunum okkar. Frá því ég tók við, og þessi stjórn sem er núna, þá er það út fyrir okkar verksvið.''

,,Við erum með lausa leikmenn í Þóri og Óla. Nú verður ákvörðun Rúnars að gefa fyrirmæli um hvernig það verður áfram.''

,,Það væri mjög gaman að fara niður í klefa og segja honum hvernig hann á að gera hlutina. Bara til að sjá hvernig hann bregst við.''
„Viðræðurnar voru mjög góðar frá fyrsta símtali og mesti tíminn fór í að ná saman, bæði með hvað hann sá fyrir sér og við," sagði Agnar Þór Hilmarsson formaður Fram við Fótbolta.net í dag eftir að Rúnar Kristinsson hafði samið við félagið um að taka við þjálfun meistaraflokks karla.
„Við hittumst fyrst á þriðjudaginn í síðustu viku og þetta var svotil klárt á föstudag. Svo fór helgin í einhver smáatriði," sagði Agnar.
Hvað var búið að gerast fram að því, voruð þið að skoða aðra kosti?
„Nei, í raun og veru vorum við með mikinn fókus á að klára tímabilið og trufla eins lítið og við gátum. Við unnum á bakvið tjöldin en Rúnar var allan tímann efstur á blaði.2
Raggi Sig kláraði tímabilið með liðið, kom aldrei til greina að hann héldi áfram?
„Jú, það er ekkert leyndarmál að Raggi hefði verið þjálfarinn sem við hefðum ráðið. Við öll í stjórn og félaginu vorum mjög ánægð með hans störf, hann gerði mjög vel, kom sterkt inn og breytti því sem breyta þurfti. Ég mun alltaf mæla með Ragga sem þjálfara, hann er gríðarlega faglegur. Ég hringdi í hann í gær og við áttum gott samtal. Hann kom klárlega til greina."
Afhverju völduð þið þá að fara aðra leið en hann?
„Maður með það kaliber og reynslu sem Rúnar hefur stýrði þessu fyrst og fremst. Viðræður við hann voru það góðar frá degi eitt svo okkur fannst kaliberið á honum vera það mikið og hans framlag í félagið gæti orðið meira og þar af leiðandi ákváðum við að fara í hann."
Þið vitið það sjálfir að þið eruð að landa stærsta bitanum á markaðnum?
„Já, það er nákvæmlega þannig. Hann er eitt stærsta nafnið í bransanum hér heima og hefur verið lengi."
Fyrir utan að semja um peningagreiðslur sem er alltaf hluti af þessu, hvað var annað rætt, er Rúnar að gera kröfur um leikmannamál eða umgjörð?
„Nei, í raun og veru ekki. Þetta snýst um að menn nái saman persónulega og sjái samstarf með stjórn og þjálfara og hverjar okkar vinnureglur eru. Hvert hans starfssvið er og hvar hann hefur ákvörðunarvaldið og hvar stjórn hefur það. Það sneri meira að því og við erum sammála um að við erum með góðan leikmannahóp þó svo einhversstaðar megi bæta við. Það voru engar kröfur eða engin skilyrði um að einhver yrði sóttur eða neitt svoleiðis. Sú vinna er á frumstigum og fór aðallega í þau mál sem standa opin."
Undir lok tímans hjá KR var Rúnar gagnrýninn í viðtölum og gaf í skyn að stjórn skipti sér af leikkerfi og leikmannamálum. Er búið að ræða þau mál í Fram?
„Það var rætt mjög stuttlega og eitt af atriðunum á fyrstu fundunum okkar. Frá því ég tók við, og þessi stjórn sem er núna, þá er það út fyrir okkar verksvið. Við ráðum einstakling til að sjá um þetta og hann þarf að fá fullt svæði til að vinna þá vinnu. Hann þarf stuðning frá okkur en ekki afskiptasemi. Ég er sammála honum í því og þannig finnst mér að þessir hlutir þurfi að vera. Menn þurfa að þekkja sín hlutverk hvar þeir bera ábyrgðina og hvar þjálfarinn ber ábyrgðina. Það var skýrt frá degi eitt, þó það væri mjög gaman að fara niður í klefa og segja honum hvernig hann á að gera hlutina. Bara til að sjá hvernig hann bregst við. Nei nei, það er mjög skýrt og var tekið fyrir."
Þú ert semsagt ekki þannig formaður sem skammar þjálfarann?
„Nei, ég er það ekki og þegar á móti blæs snýst það meira um að standa saman og sýna stuðning og sjá hvar við getum bakkað hvorn annan upp heldur en að ætla að stýra þessu sjálfur."
Hvað er ljóst með teymið hjá ykkur?
„Allir samningar voru lausir og við þurfum að ráða aðstoðarþjálfara. Það er einnig eitt af verksviðum þjálfarans. Við viljum að þjálfarinn velji einstakling sem hann vill vinna með og það teymi sem hann telur að hann þurfi til að ná sínum markmiðum. Það er eitt af því sem við erum aðeins búnir að undirstinga en eigum eftir að klára. Svo eru lausir samningar í styrktarþjálfun og sjúkraþjálfun sem samkvæmt okkar samtölum við Rúnar er ekki mikil krafa á. Þeir hafa starfað hér við góðan orðstýr sem þar eru. Þetta eru helst aðstoðarþjálfari og markmannsþjálfari sem eru lausir."
Er búið að tala við einhvern?
„Ekki við sjálfir nei, en Rúnar er með einhverja hugmynd um hverja hann vill en það er ekkert formlegt farið í gang."
Ekkert sem þú vilt segja mér frá allavega?
„Ekki að svo stöddu. Það er ekkert sem ég gæti sagt til um."
Það eru tveir farnir, Ion og Delphin, eru fleiri farnir?
„Ion og Delphin eru staðfestir en við erum með lausa leikmenn í Þóri og Óla. Nú verður ákvörðun Rúnars að gefa fyrirmæli um hvernig það verður áfram. Við erum búnir að ræða aðeins við þá en það er enginn annar farinn."
Hafið þið fengið einhver tilboð í leikmenn?
„Nei, það hefur ekki komið neitt formlegt tilboð í neinn af okkar leikmönnum fyrir utan að það er komið tilboð í Viktor Bjarka Daðason og við reiknum með að það gangi eftir en hann er auðvitað í 3. flokki."
Þú þarft ekki að segja mér upphæð en getur Rúnar fengið pening til að fá leikmenn?
„Við erum ekki að vinna á neinum krónutölum en hann getur fengið leikmenn. Eins og þú veist eru tveir erlendir leikmenn farnir og óljóst með aðra. Hið minnsta er hægt að sækja þá styrkingu sem þarf á móti þeim kostnaði sem er farinn út. Það er ljóst en annars er engin upphæð og það er bara tekið fyrir mál fyrir mál ef það kemur upp."
Það er rúm vika síðan það lak út að þið ætluðuð að ræða við Rúnar og það eru kröfuharðir stuðningsmenn hjá Fram. Finnurðu viðhorf þeirra við tíðindunum?
„Já, ég geri það alveg, ég finn bæði þegar það gustar um félagið og þegar það eru jákvæðar fréttir þá fæ ég símtöl. Við erum með stórt bakland og þeirra símtöl eru alltaf af jákvæðum toga. Það hefur aldrei verið hringt og ég skammaður en margir vilja koma ábendingum til skila. Það er hið besta mál og það er Fram andinn. Það eru margir nálægt þessu og ofan í þessu. Stundum geta þeir verið smá óþolinmóðir sem er bara gott. Menn vilja að hlutirnir gerast hratt."
Hvernig eru þessir einstaklingar að taka tíðindunum með Rúnar?
„Það eru allir mjög ánægðir, ég leit á símann strax eftir fund og það eru komin fullt af skilaboðum strax og einhverjir byrjaðir að hringja. Það er mikil ánægja með félaginu, þetta er stór dagur fyrir okkur og markar vonandi tímamót."
Athugasemdir