Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 26. september 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Kemur Maguire til varnar - „Þetta fólk á sér ekki líf"
Harry Maguire og Nemanja Matic
Harry Maguire og Nemanja Matic
Mynd: EPA
Nemanja Matic, fyrrum samherji Harry Maguire hjá Manchester United, kemur enska varnarmanninum til varnar í viðtali við Times.

Matic og Maguire voru samherjar hjá United í þrjú ár. Maguire var gerður að fyrirliða liðsins á fyrsta tímabili sínu hjá félaginu eftir að Ashley Young fór til Inter.

Síðustu tvö tímabil hefur hann verið gagnrýndur harðlega fyrir frammistöðu sína með liðinu. Fólk á samfélagsmiðlum hefur gert óspart grín að leikmanninum en Matic býður við þessari hegðun og segir hana ósanngjarna.

„Það er algjör hörmung þar sem fólk er að gera honum. Það eru takmörk fyrir öllu og sumt sem fólk skrifar á samfélagsmiðlum eiga sér ekki líf þannig það verður að skrifa slæma hluti um einhvern annan," sagði Matic við Times.
Athugasemdir
banner
banner
banner