KA maðurinn Atli Sveinn Þórarinsson er mættur heim til Akureyrar og hefur verið ráðinn afreksþjálfari hjá KA. Hann er uppalinn hjá félaginu og lék á sínum ferli yfir 100 leiki í deild og bikar fyrir félagið.
Hann var síðast hjá KA árið 2015 þar sem leikmannaferlinum lauk vegna höfuðmeiðsla. Atli Sveinn gerði einnig garðinn frægan hjá Val á sínum leikmannaferli og spilaði níu A-landsleiki.
Hann lék einnig sem atvinnumaður hjá Örgryte í Svíþjóð.
Hann var orðaður við endurkomu norður haustið 2023 en þá var hann ekki á leið til Akureyrar, en er nú kominn norður.
Sem afreksþjálfari mun Atli Sveinn sinna afreksmálum yngri leikmanna KA auk þess að koma að þjálfun hjá meistaraflokk og 2. flokk félagsins.
Sem meistaraflokksþjálfari hefur Atli Sveinn veirð hjá Dalvík/Reyni, Fylki og síðast Haukum árið 2023.

Úr frétt á heimasíðu KA
Það má með sanni segja að mikil eftirvænting sé hjá okkur fyrir endurkomu Atla hingað norður og verður gaman að sjá hann aðstoða okkur við að lyfta okkar góða starfi upp á enn hærra plan.
Sumarið 1996 lék Atli Sveinn sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KA, þá aðeins 16 ára gamall. Hann sýndi strax mikla leiðtogahæfileika og sló í gegn með liði KA sem endaði með því að hann gekk í raðir Örgryte í Svíþjóð árið 2000.
Að leikmannaferlinum loknum hefur Atli unnið hin ýmsu störf í þjálfun og ljóst að hann mun koma með gríðarlega reynslu inn í afreksstarfið hjá okkur bæði sem leikmaður og þjálfari.
Ekki skemmir þá fyrir að hann brennur fyrir KA og erum við í skýjunum með að hafa landað Atla Sveini aftur heim.
Athugasemdir