Erling Haaland er kominn með 20 mörk í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði tvö í 3-1 sigri Manchester City gegn Leeds United á Elland Road.
Haaland fæddistmí Leeds og fagnaði hóflega.
Haaland fæddistmí Leeds og fagnaði hóflega.
„Það var ákveðið fyrirfram. Mér fannst ekki rétt að fagna of mikið. Ég fæddist í Leeds og ber virðingu fyrir félaginu," segir Haaland.
„Auðvitað fagnaði ég með Jack Grealish því hann átti tvær stórkostlegar stoðsendingar á mig. Mamma og pabbi voru á leiknum og þetta var sérstakt. Þegar ég var lítill átti ég Leeds treyju með Eirik Bakke á bakinu og City treyju með nafni pabba."
Pabbi Erling Haaland, Alf-Inge Haaland, lék með Leeds þegar sonur hans fæddist fyrir 22 árum. Nokkrum mánuðum síðar fór hann til City.
Athugasemdir