Manchester United hefur náð samkomulagi við Ajax um kaup á Brasilíumanninum Antony.
Kaupverðið er 100 milljónir evra en Alfred Schreuder stjóri Ajax skilur ekki af hverju United sé að borga þetta verð fyrir Antony.
„Upphæðirnar í dag eru klikkaðar. Barcelona borgaði 115 milljónir evra fyrir Dembele, United borgaði 100 milljónir fyrir Sancho svo eru þeir að borga það fyrri Antony líka. Eru leikmennirnir virkilega þess virði? Nei, en samt er þessu pungað út," sagði Schreuder.
Antony lék undir stjórn Erik ten Hag stjóra United hjá Ajax.
Athugasemdir