Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 25. júlí 2010 14:56
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Soccernet 
Man City verður að selja 12 leikmenn útaf reglubreytingu
Roberto Mancini.
Roberto Mancini.
Mynd: Getty Images
Manchester City verður að selja 12 leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar í lok næsta mánaðar því annars verður þessum fjölda leikmanna bannað að spila með liðinu.

Samkvæmt nýjum reglum ensku úrvalsdeildarinnar verða félögin í deildinni að skila inn 25 manna hópi fyrir 1. september og þeir sem verða á þeim lista verða þeir einu sem mega spila með liðinu.

Reyndar mega félög leggja fram ótakmarkaðan lista yfir leikmenn 21 árs gamla og yngri en Manchester City er vel yfir 25 manna takmarkinu.

Leikmenn sem taldir eru þurfa að fara eru Roque Santa Cruz, Craig Bellamy, Jo, Felipe Caicedo, Micah Richards, Michael Johnson, Vincent Kompany, Shaun Wright-Phillips, Stephen Ireland, Nigel De Jong, Kelvin Etuhu, Pablo Zabaleta og Nedum Onuoha.

Þá er Robinho enn skráður leikmaður félagsins og óvíst hver hans framtíð verður.

,,Ég veit að við verðum að selja einhverja leikmenn því eftir 20 daga verðum við að hafa tilbúinn lista 25 leikmanna," sagði Roberto Mancini stjóri City en reyndar hefur hann rýmri tíma en það því hann hefur frest til 1. september.

,,Ég er vonsvikinn því sumir leikmenn verða að skipta um lið núna. Það er erfitt fyrir þá að spila með okkur. Þegar þú spilar í fjórum keppnum verðurðu að hafa stóra hópa því annars lendirðu í vandræðum. Því er mikilvægt að hafa 25 leikmenn."
banner
banner
banner