Sóknarmaðurinn Nathan Delfouneso sat fyrir svörum á blaðamannafundi enska U21-landsliðsins í dag. Enska liðið mætir því íslenska á Laugardalsvelli annað kvöld og býst Delfouneso við erfiðum leik.
Þetta verður ekki í fyrsta skipt sem hann spilar á Laugardalsvellinum því hann var í leikmannahópi Aston Villa sem mætti FH á vellinum 2008.
Delfouneso spilaði síðasta stundarfjórðunginn í leiknum þá aðeins sautján ára gamall. Hann á 24 leiki að baki með aðalliði Aston Villa en í fyrra var hann lánaður til Burnley.
Í myndbandinu hér að ofan má sjá hvað hann hafði að segja á fundinum í dag.






















