Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   mán 17. október 2011 17:14
Magnús Már Einarsson
Ólafur Jóhannesson: Nú er maður orðinn tölvuvæddur
,,Ég var hér sem ungur krakki og líka sem meistaraflokksmaður þannig að ég er kominn á heimaslóðir," sagði Ólafur Jóhannesson fyrrum landsliðsþjálfari eftir að hafa skrifað undir samning við Hauka í dag.

,,Hér hefur verið unnið frábært yngri flokka starf. Það er mikið af ungum leikmönnum hér núna og það var það sem mig langaði að fara í. Mig langaði að fara og þjálfa og eiga þess kost að búa til lið eftir mínu höfði með yngri leikmönnum og ná í eldri leikmenn með reynslu og ég fæ það hér."

Haukar enduðu í þriðja sæti í sumar en stefnan næsta sumar er að vera með lið sem getur barist um sæti í Pepsi-deildinni.

,,Það verður að koma í ljós seinna en við stefnum að því að vera með lið sem á möguleika á því."

Um leið og Ólafur skrifaði undir í dag var Sigurbjörn Hreiðarsson kynntur til sögunnar sem spilandi aðstoðarþjálfari.

,,Ég vildi fá reynslumenn til að vera í kringum mig inni á vellinum og Bjössi er einn af þeim. Hann er gríðarlega sterkur karakter og gerir leikmennina í kringum sig betri," sagði Ólafur sem ætlar að fá fleiri reynslubolta til Hauka.

,,Ég stefni sannarlega að því. Nú er maður orðinn tölvuvæddur þannig að maður sendir bara skeyti."

Ólafur ætlar þó ekki að nýta sér samskiptasíðuna Twitter til að fá leikmenn. ,,Ég kann það nú ekki ennþá en eitthvað kann ég," sagði Ólafur léttur í bragði.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner