Ólafur Páll Snorrason býst við að leika áfram með FH-ingum næsta sumar. Samningur Ólafs Páls rennur út um áramót en hann býst við að gera nýjan samning.
,,Ég verð örugglega áfram hjá FH. Það er ekkert annað inni i myndinni," sagði Ólafur Páll við Fótbolta.net í dag.
,,Ég er ekkert að flýta mér í þeim efnum en það er samningur á borðinu sem verður undirritaður nema eitthvað annað mjög óvænt komi upp á."
Ólafur fékk í dag verðlaun frá bókaútgáfunni Tindi sem gefur út Íslensk knattspyrna en verðlaunin fékk Ólafur Páll fyrir að eiga flestar stoðsendingar í Pepsi-deildinni í sumar.
Ólafur Páll lagði upp tíu mörk og endaði fyrir ofan Guðmund Steinarsson og Bjarna Guðjónsson sem komu í næstu sætum. Ólafur Páll segir það vera skemmtilegra að leggja upp mörk en skora.
,,Já mér finnst það, það sést kannski á recordinu hjá mér síðustu árin að ég er að leggja upp meira en ég er að skora og mér finnst alltaf jafn gaman að leggja upp mörk."
,,Ég er rosalega ánægður með að fá eitthvað fyrir þetta því að það eru ekki allir sem taka eftir þessu. Ég er mjög ánægður með að fá þessa viðurkenningu í dag."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























