Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
   fös 31. ágúst 2012 20:47
Elvar Geir Magnússon
Trausti Sigurbjörns: Vantar hlunk eins og Hjössa Hjass
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
„Það er ekkert vonleysi í mönnum meðan það er möguleiki," sagði Trausti Sigurbjörnsson, markvörður ÍR, eftir að liðið tapaði 0-2 fyrir Haukum í kvöld.

Nigel Quashie, þjálfari ÍR, hélt sínum mönnum lengi inni í klefa eftir leik enda er liðið í erfiðri stöðu í neðsta sætið og útlitið svart.

Lestu um leikinn: ÍR 0 -  2 Haukar

„Við erum að standa okkur fínt í leiknum en erum að taka slæmar ákvarðanir. Það var enginn hárblásari, hann var bara í rólegheitum að fara yfir þetta. Við erum komnir með bakið upp við vegg og verðum að taka því eins og menn."

Ákveðið bit vantar í sóknaraðgerðir ÍR.

„Það vantar þessa tönn. Það vantar svona hlunk eins og Hjössa Hjass til að pota þessu inn. Það vantar þessa kalla. Það þarf einhver að stíga upp, taka gamla kallinn á þetta og pota þessu inn," sagði Trausti.

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner