Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fim 22. janúar 2015 14:05
Magnús Már Einarsson
Ödegaard æfir bæði með aðal- og varaliðinu
Martin Ödegaard.
Martin Ödegaard.
Mynd: Getty Images
Norska undrabarnið Martin Ödegaard mun hefja æfingar bæði með aðal og varaliði Real Madrid.

Ödegaard mun skiptast á að æfa með liðunum en hann greindi frá þessu á fréttamannafundi í dag.

,,Ég æfi aðeins með aðalliðinu og aðeins með varaliðinu. Ef Ancelotti vill nota mig þá er ég að sjálfsögðu klár en ef ekki þá eru möguleikar með varaliðinu," sagði Ödegaard.

,,Það skiptir ekki svo miklu máli hvort ég byrja á að spila með aðalliðinu eða varaliðinu. Tækifærið kemur þegar það kemur."

,,Ég finn ekki fyrir neinni pressu. Auðvitað er allt annað að spila með Real Madrid en með Godset en þetta er draumur að rætast og ég ætla að njóta draumsins."


Fleiri Ödegaard fréttir:
Æfir bæði með aðal- og varaliðinu
Ödegaard: Óraunverulegt að sitja hér
Ödegaard eyddi tísum um Messi
Pistill: Galacticoinn sem á að redda Noregi
Sagður fá 2,3 milljónir á dag
Ödegaard til Real Madrid (Staðfest)
Varar Ödegaard við því að ganga til liðs við Real Madrid
Ödegaard meðhöndlaður eins og kóngur
Verður Ödegaard flopp eins og Freddy Adu?
Don Balon listinn: Ödegaard sá yngsti
Pabbi gaf leyfi á að Ödegaard yrði í FM15
Fimmtán ára norskur strákur sló met Sigga Jóns
Hvernig fer Breiðablik - Valur á mánudag?
Athugasemdir
banner
banner
banner