Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 18. maí 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Ásgeir Sigurgeirs spáir í leiki 3. umferðar í Inkasso
Ásgeir Sigurgeirsson.
Ásgeir Sigurgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Björgvin Stefánsson var með fjóra rétta þegar hann spáði í aðra umferðina í Inkasso-deildinni um síðustu helgi.

Ásgeir Sigurgeirsson, leikmaður KA, settist í spádómsstólinn að þessu sinni og hér að neðan má sjá spá hans.



Fram 2 - 1 Leiknir R. (19:15 í kvöld)
Fram heldur uppteknum hætti og taka þenna leik með sigurmarki á lokamínútunum.

HK 3 - 3 Selfoss (19:15 í kvöld)
Þetta verður leikur umferðarinnar. Kristófer Páll líklegur til að kötta inn og setja einn í samúel.

ÍA 3 - 0 Haukar (19:15 í kvöld)
Öruggur sigur og Steinar Þorsteins setur 3. Ekkert meira um það að segja

ÍR 0 - 0 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Þetta verður einn leiðinlegur leikur sem endar með markalausu jafntefli.

Njarðvík 2 - 2 Þór (14:00 á laugardaginn)
Spái því að þetta verður rokleikur sem endar með jafntefli þar sem skorað verður 4 skallamörk.

Magni 2 - 0 Víkingur Ó. (13:00 á laugardaginn)
Taktísk snilld sem Andrés aðstoðarþjálfari setur upp og þeir ná að halda hreinu í þessum leik. Mæta vel peppaðir í þennan leik þar sem Andrés verður búinn keðjuspila hvítur hestur með hljómsvetinni pálmar í klefanum fyrir leik. Svakalegt lag hjá drengnum og mjög vanmetið. Njótið.

Fyrri spámenn
Björgvin Stefánsson (4 réttir)
Oliver Sigurjónsson (4 réttir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner