Færist nær því að yfirgefa Man Utd - Barca ætlar að kaupa Rashford - Newcastle hefur áhuga á Ederson
   þri 04. nóvember 2025 09:45
Elvar Geir Magnússon
Fengu fréttir af því í miðjum leik að þjálfari þeirra væri látinn
Leikmenn brotnuðu niður eftir að hafa fengið fréttirnar.
Leikmenn brotnuðu niður eftir að hafa fengið fréttirnar.
Mynd: Skjáskot
Mladen Zizovic, stjóri Radnicki 1923 í Serbíu, fékk hjartaáfall á hliðarlínunni eftir 22 mínútna leik gegn Mladost á sunnudaginn.

Zizovic var fluttur á sjúkrahús og leikurinn hófst að nýju en var hætt eftir að fréttir bárust um að hann hefði látist. Hér að neðan má sjá myndskeið af því þegar leikmenn brotnuðu niður eftir að hafa fengið fréttirnar í miðjum leik.

Zizovic var aðeins 44 ára og var að stýra sínum þriðja leik með Radnicki eftir að hann var ráðinn í október. Hann lætur eftir sig þrjú börn,

Á leikmannaferlinum lék hann tvo landsleiki fyrir Bosníu og Hersegóvínu. Í fyrra kom hann hingað til lands sem stjóri Borac Banja Luka þegar Víkingur vann 2-0 sigur gegn liðinu á Kópavogsvelli.


Athugasemdir
banner