Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. mars 2023 12:13
Elvar Geir Magnússon
Moyes: Klúðruðum frábæru tækifæri
David Moyes, stjóri West Ham.
David Moyes, stjóri West Ham.
Mynd: EPA
David Moyes stjóri West Ham var svekktur yfir því að hans lið hafi ekki náð að leggja sitt gamla félag Manchester United og komast í 8-liða úrslit FA-bikarsins.

West Ham komst yfir í leiknum en Manchester United jafnaði með sjálfsmarki. Í lokin komu svo tvö mörk frá Manchester United, sem Alejandro Garnacho og Fred skoruðu, og tryggðu 3-1 sigur.

„Við höfðum frábært tækifæri til að komast áfram en klúðruðum því. Við áttum möguleika á að koma okkur áfram en náðum ekki að nýta hann," segir Moyes.

„Við fengum á okkur tvö fáránleg mörk, mörk sem við gefum. Við fengum tækifæri til að gera út um þetta, Michail Antonio komst tvisvar einn gegn markverði. Í um 60-70% af leiknum vorum við með góða stjórn."

„Eftir leikinn sagði ég við leikmenn að ég væri svekktur yfir því að við náðum ekki að komast áfram. Við fengum frábær tækifæri til að slá United út. Við framkvæmdum grunnatriðin illa, við klúðruðum einföldum hlutum."
Athugasemdir
banner
banner
banner